Leiðtogafundur um málefni Úkraínu í janúar Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2014 16:35 Petró Pórósjenkó Úkraínuforseti. Vísir/AP
Petró Pórósjenkó Úkraínuforseti greindi frá því fyrr í dag að hann myndi eiga fund með leiðtogum Rússlands, Frakklands og Þýskalands í janúar til að vinna að lausn mála í austurhluta Úkraínu. Pórósjenkó viðurkenndi að úkraínsk stjórnvöld skorti sem stendur hernaðarlegar bjargir til að ná austurhluta landsins aftur á sitt vald, en aðskilnaðarsinnar á bandi Rússlandsstjórnar ráða nú yfir stórum landsvæðum þar.Í frétt Reuters kemur fram að Pórósjenkó sagðist einnig hafa rætt við Barack Obama Bandaríkjaforseta um möguleikann á að hann myndi einnig sækja fundinn. „Það mikilvægasta er að umbreyta viðkvæmu vopnahléi í stöðugan frið og ná hernumdum svæðum aftur undir stjórn úkraínskra stjórnvalda.“ Úkraínuforsetinn sagðist munu funda með Angelu Merkel Þýskalandskanslara, Francois Hollande Frakkandsforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Astana, höfuðborg Kasakstans, þann 15. janúar. Sagði hann að ekki yrðu gerðar málamyndanir varðandi fullveldi landsins og að úkraínsk stjórnvöld vildu landsvæðin í austurhluta landsins, auk Krímskaga, sem Rússland innlimaði í mars síðastliðinn, aftur undir sína stjórn. Hernaðarleg lausn væri hins vegar ekki möguleg. „Við erum ekki með bjargir til að hefja sókn núna.“ 4.700 manns hafa látist í átökum úkraínska stjórnarhersins og aðskilnaðarsinna frá því í apríl síðastliðinn.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Fleiri fréttir Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Sjá meira