Innlent

Milduðu nauðgunardóm

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hæstiréttur telur manninn í eitt skipti hafa haft réttmæta ástæðu til að ætla að konan væri samþykk samförum.
Hæstiréttur telur manninn í eitt skipti hafa haft réttmæta ástæðu til að ætla að konan væri samþykk samförum. Vísir/Stefán
Karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot. Maðurinn hafði áður verið dæmdur tveggja ára og sex mánaða fangelsi fyrir sömu brot í héraðsdómi. Hæstiréttur taldi hinsvegar að ekki ætti að sakfella hann fyrir sömu liði og héraðsdómur hafði gert en ákæran á hendur honum var í þremur liðum.

Í dómnum kemur fram að náin kynni hafi tekist með manninum og konunni sem kærði hann haustið 2012 og fljótlega hafi þau farið að stunda kynlíf þar sem valdi var beitt með samþykki beggja. Það hafi meðal annars falist í því að í aðdraganda samfara hafi hann haldið höndum hennar fyrir aftan bak og yfirbugaði hana en hún streittist á móti meðan á samförum stóð.

Konan bar því hinsvegar við að í þrjú tilgreind skipti hafi maðurinn gengið fram án hennar samþykkis. Konan lagði því kæru á hendur manninum fyrir nauðgun vegna þessar skipta í lok árs 2012 en kynferðislegt samband þeirra hélt áfram fram á mitt ár 2013, að því er segir í dómnum

Hæstiréttur sakfelldi karlmanninn fyrir einn lið ákærunnar, fyrir að hafa brotið gegn henni kynferðislega í ótilgreindu iðnaðarhúsnæði. Þar reif hann meðal annars í hár hennar, kastaði henni til með þeim afleyðingum að hún hlaut mar á báða úlnliði, og stakk fingrum í leggöng og rass.

Hæstiréttur vísaði til þess í dómi sínum að ekki yrði refsað fyrir nauðgun nema að gerandinn hefði haft ásetnings til slíks á verknaðarstundu. Að mati dómsins, í ljósi samskipta aðilanna, hafði maðurinn réttmæta ástæðu til að ætla að konan væri samþykk samförum við hann í eitt af þeim skiptum sem ákært var fyrir.

Í dómnum segir að verknaðurinn sem maðurinn er sakfelldur fyrir feli í sér alvarlegt brot gegn friðhelgi líkama konunnar og að háttsemi hans gagnvart henni niðurlægjandi. Sérstaklega var hinsvegar litið til þess við ákvörðun refsingar að maðurinn hafi verið tvítugur þegar brotið átti sér stað og að hann hafi ekki áður sætt refsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×