Milduðu nauðgunardóm Aðalsteinn Kjartansson skrifar 11. desember 2014 17:15 Hæstiréttur telur manninn í eitt skipti hafa haft réttmæta ástæðu til að ætla að konan væri samþykk samförum. Vísir/Stefán
Karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot. Maðurinn hafði áður verið dæmdur tveggja ára og sex mánaða fangelsi fyrir sömu brot í héraðsdómi. Hæstiréttur taldi hinsvegar að ekki ætti að sakfella hann fyrir sömu liði og héraðsdómur hafði gert en ákæran á hendur honum var í þremur liðum. Í dómnum kemur fram að náin kynni hafi tekist með manninum og konunni sem kærði hann haustið 2012 og fljótlega hafi þau farið að stunda kynlíf þar sem valdi var beitt með samþykki beggja. Það hafi meðal annars falist í því að í aðdraganda samfara hafi hann haldið höndum hennar fyrir aftan bak og yfirbugaði hana en hún streittist á móti meðan á samförum stóð. Konan bar því hinsvegar við að í þrjú tilgreind skipti hafi maðurinn gengið fram án hennar samþykkis. Konan lagði því kæru á hendur manninum fyrir nauðgun vegna þessar skipta í lok árs 2012 en kynferðislegt samband þeirra hélt áfram fram á mitt ár 2013, að því er segir í dómnum Hæstiréttur sakfelldi karlmanninn fyrir einn lið ákærunnar, fyrir að hafa brotið gegn henni kynferðislega í ótilgreindu iðnaðarhúsnæði. Þar reif hann meðal annars í hár hennar, kastaði henni til með þeim afleyðingum að hún hlaut mar á báða úlnliði, og stakk fingrum í leggöng og rass. Hæstiréttur vísaði til þess í dómi sínum að ekki yrði refsað fyrir nauðgun nema að gerandinn hefði haft ásetnings til slíks á verknaðarstundu. Að mati dómsins, í ljósi samskipta aðilanna, hafði maðurinn réttmæta ástæðu til að ætla að konan væri samþykk samförum við hann í eitt af þeim skiptum sem ákært var fyrir. Í dómnum segir að verknaðurinn sem maðurinn er sakfelldur fyrir feli í sér alvarlegt brot gegn friðhelgi líkama konunnar og að háttsemi hans gagnvart henni niðurlægjandi. Sérstaklega var hinsvegar litið til þess við ákvörðun refsingar að maðurinn hafi verið tvítugur þegar brotið átti sér stað og að hann hafi ekki áður sætt refsingu.
Mest lesið Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Innlent Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Mælir gegn heilskimun Intuens Innlent Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Innlent Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Innlent Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Erlent Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Innlent Fleiri fréttir Markmiðið ekki að höfða til kvíða aðstandenda Skilorð fyrir vopnaðan nytjastuld Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Mælir gegn heilskimun Intuens Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Stefnuræða Þorgerðar Katrínar og gróðureldarnir Enn ekkert ákveðið um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Bein útsending: Stefnuræða Þorgerðar Katrínar í mannréttindaráðinu Síbrotagæsla eftir afskipti lögreglu tvo daga í röð Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Vatnsból hefðu verið í hættu ef vindáttin hefði verið önnur Tvær handtökur í nótt Enginn sinueldur og róleg nótt hjá slökkviliði eftir eril gærdagsins Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Líf bar sigur úr býtum Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Sinueldur við Elliðavatn „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Rúta full af ferðamönnum fór út af veginum Vísar gagnrýni verkalýðsleiðtoga til föðurhúsanna Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Leitað logandi ljósi eftir nýjum kirkjugarði á Selfossi Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Sinueldar, sjúklingar og skafrenningur Reykur sást á flugvallarsvæðinu Sjá meira