Enn tapar Mourinho á St. James Park Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 6. desember 2014 00:01 Cisse sáttur með sig og má vera það Vísir/Getty
Newcastle varð í dag fyrsta liðið til að leggja Chelsea að velli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta þetta tímabilið. Newcastle vann leikinn 2-1 þrátt fyrir þunga sókn Chelsea í lokin. Eftir markalausan og tíðindalítinn fyrri hálfleik var það Newcastle sem komst yfir með marki Papiss Cissé á tólftu mínútu seinni hálfleiks. Newcastle fékk besta færi fyrri hálfleiks. Tólf mínútum fyrir leikslok bætti Cissé öðru marki við en Chelsea fékk svo sannarlega líflínu þremur mínútum síðar þegar Steven Taylor fékk sitt annað gula spjald.Didier Drogba skoraði eftir sendingu Cesc Fabregas úr aukaspyrnunni sem dæmd var á Taylor og munurinn aðeins eitt mark þegar sjö mínútur voru til leiksloka. Herslumuninn vantaði fyrir Chelsea í lokin og fagnaði Newcastle þriðja sigrinum í röð gegn Chelsea á heimavelli. Jose Mourinho þarf enn að bíða eftir fyrsta sigri sínum á St. James Park. Chelsea er þó sem fyrr á toppi deildarinnar en Manchester City getur minnkað forystu liðsins seinna í dag niður í þrjú stig. Upprisa Newcastle heldur áfram en liðið er nú með 23 stig í 7. sæti eftir 15 leiki.Cisse kemur Newcastle yfir: Cisse bætir við marki: Taylor rekinn útaf og Drogba minnkar muninn:
Enski boltinn Mest lesið Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Freyr himinlifandi með íslensku strákana Fótbolti Fleiri fréttir Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Sjá meira