Fótbolti

Sölvi og félagar aftur á sigurbraut

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sölvi og félagar unnu mikilvægan sigur í dag.
Sölvi og félagar unnu mikilvægan sigur í dag. mynd/heimasíða ural
Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn þegar Ural bar sigurorð af Arsenal Tula á útivelli í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur 1-2, Ural í vil.

Með sigrinum komst Ural úr umspilssæti og upp í það í 12., en liðin í 13. og 14. sæti mæta liðunum sem enda í 3. og 4. sæti í næstefstu deild í umspili um sæti í úrvalsdeildinni. Tvö neðstu liðin í úrvalsdeildinni falla hins vegar beint niður um deild.

Vladimir Khozin kom Ural yfir í dag með marki á 45. mínútu og þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik tvöfaldaði Fyodor Smolov forystuna með marki úr vítaspyrnu.

Sergey Maslov minnkaði muninn fyrir Arsenal Tula á 73. mínútu, en nær komust heimamenn ekki.

Sölvi átti flottan leik í miðri vörn Ural. Samkvæmt tölfræðisíðunni WhoScored.com vann íslenski landsliðsmaðurinn þrjár tæklingar, fjóra skallabolta og hreinsaði boltann tólf sinnum frá marki Ural sem komst aftur á sigurbraut eftir þrjá tapleiki í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×