Beið í 90 mínútur með slösuðum ketti á umferðareyju Kjartan Atli Kjartansson skrifar 3. nóvember 2014 07:00 Karen Huld kom að köttunum tveimur í gærmorgun.
Karen Huld Tryggvadóttir beið eftir lögreglu í einn og hálfan tíma á umferðareyju á Nýbýlavegi, en hún kom að tveimur köttum sem keyrt hafði verið yfir. Á endanum gafst hún upp og fór sjálf með kettina á dýraspítala þrátt fyrir að dýralæknir hafi sagt henni að halda áfram að bíða eftir lögreglunni. Vísir sagði fyrst frá málinu í gærkvöldi. Karen, sem kom að tveimur um hálf sex í gærmorgun, sá strax að annar kötturinn var dauður en hinn var á lífi. „Ég lá allan tímann hjá kettinum, bara svona til að róa hana niður,“ útskýrir hún og segir að kötturinn hafi verið afar illa haldinn. „Já, hún var skíthrædd, blóðug, mjög illa brotinn. Það sást alveg. Kjálkinn allur blóðugur og ábyggilega eitthvað að hryggnum. Hún segir frá því að þrisvar sinnum hafi verið hringt í lögregluna auk þess sem tvisvar sinnum hafi verið hringt í dýralækni á bakvakt, án þess að nokkur hafi komið á vettvang. Á endanum gafst Karen upp og fór með kettina báða á dýraspítala. Hún segir að áður hafi tvisvar sinnum verið hringt í dýralækni sem vildi eingöngu taka við köttunum úr höndum lögreglumanna. Eftir rúmlega níutíu mínútna bið gafst Karen upp og ákvað að fara með kettina á dýraspítala. Þegar þangað var komið hringdi hún í dýralækninn. „Ég sagði henni að lögreglan væri ekkert að koma; ég get ekki skilið köttinn eftir og ég get ekki látið hana kveljast svona lengi og svona mikið.“ Karen hefur ekki fengið að heyra um afdrif kattarins. Hún á sjálf tvo ketti og er ósátt við að lögreglan hafi ekki komið fyrr á vettvang. Hún hefði viljað geta komið kettinum fyrr í læknishendur og vonast til þess að þetta mál verði tekið til skoðunar. „Þetta er ekki í lagi.“
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sjá meira