Lífið

Fleiri karlmenn fá sér Botox

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Konur hafa nýtt sér Botox-sprautur síðan um miðjan áttunda áratug síðustu aldar en Botox, sem er stytting á Botulinum Toxin, veldur því að vöðvar eru lamaðir tímabundið og fækkar það hrukkum.

Nú er búið að búa til nýyrði yfir það þegar karlmenn fá sér Botox - nefnilega Brotox.

Samkvæmt tímaritinu GQ fá sífellt fleiri karlmenn sé Brotox-sprautur og vísar blaðamaður tímaritsins í tölur frá Lýtalæknasambandi Bandaríkjanna. Í tölum frá sambandinu kemur fram að karlmönnum sem fá sér Brotox hafi fjölgað um 310 prósent síðan árið 2000.

Húðsjúkdómalæknirinn Michael Eidelman, sem rekur stofu á Manhattan, segir að um fjörutíu prósent viðskiptavina sinna séu karlmenn. 

Auk Brotox eru tannhvíttun og háreyðing vinsælar meðferðir meðal karlmanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.