Smyglararnir sekir um fjöldamorð Atli Ísleifsson skrifar 19. september 2014 21:09 Zeid Ra'ad Zeid al-Hussein er nýr mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna. Vísir/AFP
Zeid Ra'ad Zeid al-Hussein, nýr mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að frásagnir eftirlifenda þar sem báti með fleiri hundruð flóttamönnum var sökkt í Miðjarðarhafi fyrr í mánuðinum, bendi til þess að brot hafi verið framið þar sem hinir seku verði að sæta ábyrgð. Um fimm hundruð flóttamenn drukknuðu þegar bátnum var sökkt undan ströndum Möltu fyrr í mánuðinum. Al-Hussein hvetur egypsk stjórnvöld að aðstoða evrópsk ríki við að hafa uppi á smyglurunum sem sökktu bátnum sem lagði úr höfn frá egypsku hafnarborginni Damietta. Sagði hann smyglarana líklega seka um fjöldamorð og nauðsynlegt sé að draga þá fyrir rétt. Mannréttindastjórinn sagði mjög mikilvægt að binda endi á refsileysi þegar kemur að slíkum brotum. Sagði hann þá sem væru á flótta undan ringulreið og stríðsátökum heima fyrir, svo sem allir þeir sem nú flýja Sýrland, ættu rétt á því að leita skjóls. Nauðsynlegt sé að endurmeta allar þær aðstæður sem fær þúsundir til að leggja á sig hættulegar ferðir á borð við þessa. Á hverju ári láta fleiri þúsundir flóttamanna lífið þegar þeir reyna að komast til Evrópu á illa búnum og ofhlöðnum bátum yfir Miðjarðarhaf. Tveir Palestínumenn sem komu lífs af, greindu Alþjóðaflóttamannastofnuninni frá því að smyglararnir hafi viljandi sökkt bátnum eftir að flóttamennirnir neituðu að færa sig yfir í smærri bát. Segja þeir að um fimm hundruð manns hafi verið í bátnum, þar af milli 50 og 100 börn.Í frétt Guardian segir að flóttamennirnir um borð í bátnum hafi meðal annars verið Palestínumenn, Egyptar, Súdanar, Sýrlendingar, og Erítreumenn, en reiknað er með að smyglararnir hafi verið Palestínumenn eða Egyptar.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira