Hafa samþykkt leið til friðar í Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2014 08:58 Petro Poroshenko, forseti Úkraínu. Vísir/AFP
Forseti Úkraínu, Petro Poroshenko, lýsti því yfir í morgun að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta að gert verði vopnahlé í austurhéruðum Úkraínu þar sem stjórnarherinn hefur síðustu mánuði barist við aðskilnaðarsinna. Rússar brugðust hinsvegar við yfirlýsingunni með því að segja að aðeins hafi verið komist að samkomulagi um að ræða næstu skref í deilunni. Þá var á því hnikkt að Rússar ættu enga aðild að átökunum. Skömmu síðar var orðalaginu í tilkynningunni frá forsetaembættinu í Úkraínu breytt og segir nú á þá leið að leiðtogarnir hafi sammælst um næstu skref í átt til varanlegs friðar.Uppfært 10:22 Fyrstu fréttir erlendra miðla af samkomulagi Poroshenko og Putin, voru byggðar á misskilningi. Upprunalega var fréttin svona: Forsetar Úkraínu og Rússlands, Petro Poroshenko og Vladimir Putin, hafa komist að samkomulagi um vopnahlé við aðskilnaðarsinna í Austur-Úkraínu. Samkvæmt skrifstofu forsetans í Úkraínu komust forsetarnir að niðurstöðu sem muni leiða til friðar, en ekkert er farið nánar út í hvað það þýðir. Um er að ræða vopnahlé í Donbass héraði þar sem borgirnar Donetsk og Luhansk, en harðir bardagar hafa geysað þar síðustu vikur. Aðskilnaðarsinnar hafa enn ekki tjáð sig um vopnahléið samkvæmt AP fréttaveitunni. Þeir hafa áður virt einhliða vopnahlé sem Poroshenko setti á í júní síðastliðnum.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Sjá meira