Erlent

Brotlending herflugvélar í íbúðarhverfi náðist á myndband

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér sést flugvélin hrapa.
Hér sést flugvélin hrapa.
Þrír létu lífið og níu slösuðust þegar herflugvél hrapaði á íbúðahverfi í borginni Tobruk í Líbíu í gær. Yfirvöld í landinu hafa staðfest að vélin hafi hrapað vegna bilunnar en henni var flogið í sýningu til heiðurs flugmanns sem lést í slysi í síðustu viku. Fréttastofa Reuters í Afríku og vefmiðillinn Russian Times greina frá.

Flugslysið náðist á myndband og sést hvernig mikill sprenging verður þegar vélin brotlendi inn í íbúðarhverfi. Af þeim þremur sem létust var einn ungur drengur.

Hér að neðan má sjá myndbönd af því þegar flugvélin brotlendir.

Hér að neðan má svo sjá myndband frá vefmiðlinum Russian Times. Þar sést vélin hrapa frá öðru sjónarhorni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×