Mikilvægasti leiðtogafundur NATO frá lokum kalda stríðsins Heimir Már Pétursson skrifar 4. september 2014 20:32
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir Rússa hafa ráðist á Úkraínu, en bandalagið lítur nú á Rússland sem fjandsamlegt ríki í fyrsta sinn frá lokum kalda stríðsins. Leiðtogar NATO komu saman í dag til að ræða breyttar aðstæður í öryggismálum bandalagsríkjanna. Anders Fogh Rasmussen fráfarandi framkvæmdastjóri NATO sagði í Newport í Wales í dag að leiðtogafundurinn þar væri einn sá allra mikilvægasti í sögu Atlantshafsbandalagsins og fundurinn færi fram á mikil óvissutímum. „Við stöndum frami fyrir gerbreyttum aðstæðum í öryggismálum. Í austri hafa Rússar ráðist á Úkraínu, í suðaustri höfum við séð hryðjuverkasamtökin Ríki íslam rísa og fremja hryllileg grimmdarverk og í suðri horfum við upp á ofbeldi, óöryggi og óstöðugleika," sagði Rasmussen við upphaf leiðtogafundarins í dag. Ástandið í Úkraínu skyggir á flest önnur mál á leiðtogafundinum en Petro Poroshenko forseta landsins var boðið á fundinn til greina frá stöðu mála. Hann fundaði sérstaklega með leiðtogum áhrifaríkja innan NATO en bandalagið telur að minnst þrjú þúsund rússneskir hermenn og skriðdrekar berjist innan landamæra Úkraínu. Aðildarríki NATO eru 28 en þau NATO-ríki sem áður tilheyrðu austurblokkinni og eiga landamæri að Rússlandi óttast um sinn hag og krefjast aukinna varna og viðveru Bandaríkjamanna innan landamæra sinna. Forseti Litháen sagði í dag að þegar innrásarríki setti einhliða fram friðartillögur eins og Rússar hefðu gert væri það ekkert annað en úrslitakostir. Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands varaði leiðtoga NATO við því í dag að bjóða Úkraínu aðild að bandalaginu og hvatti til þess að menn samþykkt friðartillögur Vladimir Pútin forseta Rússlands í sjö liðum sem hann kynnti í gær. Eftir fund með fulltrúum Öryggis- og samvinustofnunar Evrópu í dag sagðist Lavrov sannfærður um að ÖSE eins og mörg Evrópuríki vildu sigur fyrir alla þjóðernishópa í Úkraínu, en andúð hans á Bandaríkjastjórn leyndi sér ekki. Hún vildi ná fram sigri sínum og NATO í Úkraínu.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Aðalmeðferð hafin í Dettifossmálinu Innlent Fleiri fréttir Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Sjá meira