Erlent

Lítil bjartsýni um árangur í friðarviðræðum í Minsk

Heimir Már Pétursson skrifar
NATO krefst þess að Rússar láti af hernaðarlegum afskiptum í Úkraínu. ESB ákveður víðtækari refsiaðgerðir í dag.
NATO krefst þess að Rússar láti af hernaðarlegum afskiptum í Úkraínu. ESB ákveður víðtækari refsiaðgerðir í dag. Vísir/afp
Lítil bjartsýni ríkir innan Atlantshafsbandalagsins (NATO) á því að árangur náist í friðarviðræðum stjórnvalda í Úkraínu og uppreisnarmanna með þátttöku Rússa sem hefjast í Hvítarússlandi í dag. Víðtækari refsiaðgerðir gegn Rússum verða ræddar innan Evrópusambandsins í dag.

Viðræður um vopnahlé í austurhluta Úkraínu hefjast í Minsk í Hvítarússlandi í dag milli úkraínustjórnar og aðskilnaðarsinna með þátttöku Rússa, sem neita því enn að hermenn þeirra taki þátt í hernaði gegn stjórnarher Úkraínu og að þeir sjái aðskilnaðrsinnum fyrir vopnum. Afstaða Atlantshafsbandalagsins til stöðunnar í Úkraínu er skýr eins og Anders Fogh Rasmussen fráfarandi framkvæmdastjóri bandalagsins ítrekaði í gær.

„Við skorum á Rússa að hætta ólöglegu hernámi sínu á Krímskaga sem NATO viðurkennir ekki. NATO krefst þess að Rússar dragi herdeildir sínar til baka frá Úkraínu, stöðvi flutning vopna og hermanna yfir landamærin og láti af fjárstuðningi við aðskilnaðarsinna. NATO skorar á Rússa að hætta ögrunum sínum og velja þess í stað leiðina til friðar,“ sagði Rasmussen.

Petro Poroshenko forseti Úkraínu var hæfilega bjartsýnn á árangur í vopnahlésviðræðunum á fundi NATO leiðtoga í gær og almennt efast leiðtogar NATO um að hugur fylgi máli hjá Rússum. Philip Hammond utanríkisráðherra Bretlands sagði á leiðtogafundi NATO í morgun að auðvitað vonuðust allir eftir vopnahléi og að vopnuðum afskiptum Rússa af málefnum Úkraínu lyki.

„En satt best að segja höldum við ekki niðri í okkur andanum. Evrópusambandið mun síðar í dag ræða víðtækari refsiaðgerðir gagnvart Rússum. Við eigum ekki að leyfa okkur að villast af leið eða missa sjónar á markmiðum okkar vegna einhvers hávaða frá Minsk um mögulegt vopnahlé,“ sagði Hammond.

Ef samkomulag náist hins vegar  í dag með formlegri undirritun og aðgerðir fylgi þar á eftir geti staðan breyst.

„Það er að segja ef við förum að sjá rússneskar herdeildir kallaðar til baka til Rússlands, Rússar hætti að útvega aðskilnaðarsinnum vopn og stórskota- og eldflaugaárásum frá Rússlandi yfir til Úkraínu verði hætt. Þá geta menn farið að tala um að hætta refsiaðgerðum gegn Rússum,“ sagði Philip Hammond utanríkisráðherra Bretlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×