NATO sendir skýr skilaboð til Moskvu Heimir Már Pétursson skrifar 5. september 2014 19:30
Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag stofnun viðbragðssveitar sem getur brugðist við óvæntum átökum með skömmum fyrirvara. Fráfarandi framkvæmdastjóri NATO segir þessa ákvörðun senda Rússum skýr skilaboð en áhersla verður einnig lögð á aukinn sýnileika bandalagsins í austur Evrópu. Svar Atlantshafsbandalagsins við útþenslustefnu Rússlands í Úkraínu, með innlimun Krímskaga og hernaðarlegum stuðningi við aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins, birtist að loknum leiðtogafundi NATO í Wales í dag. „Í dag ákváðum við að stofna það sem ég vil kalla örvarodd innan viðbragðssveita okkar. Hersveit sem brugðist getur skjótt við og með skömmum fyrirvara. Þessi viðbragðssveit verður skipuð nokkur þúsund hermönnum sem geta brugðist við í lofti, á sjó og með sérsveitum á örfáuum dögum,“ sagði Anders Fogh Rasmussen fráfarandi framkvæmdastjóri NATO að loknum leiðtogafundinum í dag. Þá tilkynnti forseti Póllands stoltur að næsti leiðtogafundur NATO verði í Varsjá höfuðborg Póllands árið 2016, í sömu borg og Varsjárbandalag Sovétríkjanna og leppríkja þeirra var stofnað á sínum tíma. En þar munu höfuðstöðvar hinna nýju viðbragðssveita verða. David Cameron forsætisráðherra Bretlands segir nýju hersveitina verða hluta af endurskipulögðum viðbragðssveitum Atlantshafsbandalagsins með höfuðstöðvar í Póllandi. „Framvarðasveit í austurhluta bandalagsins, búin nauðsynlegum búnaði og skipulagi sem gefa kost á fleiri æfingum og skjótari viðbrögðum ef þörf á krefur,“ sagði Cameron. „Þetta sendir skýr skilaboð til allra hugsanlegra árásaraðila; að ef þeir svo mikið sem láta sér detta í hug að ráðast á eitt bandalagsríkjanna þá eigi þeir bandalaginu í heild sinni að mæta,“ sagði Rasmussen. Hann segir þessa ákvörðun einnig senda skýr skilaboð til Moskvu. „Í ljósi núverandi stöðu öryggismála er viðeigandi að fram komi að þessi viðbragðsáætlun felur einnig í sér aukinn sýnileika NATO í austri. Ég tel að það sendi mjög skýr skilaboð til Moskvu,“ sagði Anders Fogh Rasmussen.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Erlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Fleiri fréttir Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Sjá meira