Erlent

Óttast hefndaraðgerðir al-Shabab

Samúel Karl Ólason skrifar
Hermenn í Sómalíu hafa verið settir í viðbragðsstöðu.
Hermenn í Sómalíu hafa verið settir í viðbragðsstöðu. Vísir/AFP
Yfirvöld í Sómalíu hafa gefið út viðvörun vegna mögulegra hefndarverka al-Shabab hryðjuverkasamtakana vegna dauða leiðtoga þeirra, Ahmed Abdi Godane. Hann féll í loftárás Bandaríkjanna á mánudaginn, en dauði hans var staðfestur í gær.

Sómalskur hershöfðingi sagði í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi að stjórnvöl hefðu upplýsingar um að meðal annars myndu árásirnar beinast gegn skólum og sjúkrahúsum. AP fréttaveitan segir að hermenn hafi verið settir í viðbragðsstöðu.

Þá segir AP að hryðjuverkasamtökin hafi ekki gefið út neina yfirlýsingu um dauða Godane. Sérfræðingar telja að átök innan samtakanna gætu hafist og þau gætu splundrað al-Shabab.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×