Ástandið viðkvæmt þó rólegt sé á vígstöðum Birta Björnsdóttir skrifar 6. september 2014 19:50 Átökin hafa staðið yfir í um 5 mánuði en vopnahlé komst á í gær, föstudag. Mynd/AP
Fremur rólegt á vígstöðvunum við borgina Mariupol í Úkraínu eftir að vopnahlé komst á á svæðinu milli Úkraínumannna og Rússa en ástandið er þó afar viðkvæmt. Aðskilnaðarsinnar segja að vopnahléið þýði ekki að þeir muni slaka á kröfum sínum og stjórnvöld í Rússlandi segjast munu bregðast við með afgerandi hætti verði frekari viðskiptaþvinganir Evrópusambandsríkja samþykktar. Íbúar borgarinnar Mariupol fengu hvíld frá átökum undanfarinna daga og vikna í dag og reyndu margir að fást við hversdagslega hluti að því tilefni. „Eftir að vopnahléi var lýst yfir varð ástandið á hryðjuverkasvæðinu almennt rólegra. En samt var tilkynnt um nokkrar ögranir hryðjuverkamanna í gærkvöldi og nótt. Á síðasta sólarhring vörpuðu uppreisnarmenn sprengjum á stöðvar sveita sem vinna gegn hryðjuverkum 28 sinnum, þar af tíu sinnum eftir að vopnahléi var lýst yfir,“ sagði Andriy Lysenko, talsmaður öryggis- og varnarmálaráðuneytis Rússlands. En þrátt fyrir að vopnahléið hafi verið samþykkt í gær ákvað Evrópusambandið að herða refsiaðgerðir sínar gegn Rússum. Ferðafrelsi valdamanna verður takmarkað enn frekar og eignir þeirra frystar. Aðgengi Rússa að olíumörkuðum verður skert sem og að vopnaframleiðendum. Aðgerðirnar eiga að taka gildi á mánudaginn nema Rússar samþykki að draga herlið sitt tilbaka frá austurhluta Úkraínu. Ekki ríkir mikil bjartsýni á að Rússar verði við þessum kröfum og segir utanríkisráðherra Rússlands að þarlend stjórnvöld muni bregðast við með afgerandi hætti verði frekari viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins samþykktar. Þá eru uppi efasemdir um að aðskilnaðarsinnar í Úkraínu komi til með standa við sinn hluta samningsins um vopnahléið eftir að sjálfskipaður forsætisráðherra Luhansk sagði að áfram yrði barist fyrir aðskilnaði frá Úkraínu.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fleiri fréttir Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Sjá meira