Hundruð hafast við í holræsum undir lestarstöð Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 6. september 2014 21:52 Radu Ciorniciuc tók myndirnar sem fylgja þessari frétt. Mynd/Channel4News
Hundruð heimilislausra eiturlyfjaneytanda búa í holræsum Búkarest, höfuðborgar Rúmeníu, undir stærstu lestarstöð landsins Gara de Nord. Þetta afhjúpaði sjónvarpstöðin Channel 4 í Bretlandi fyrr í sumar en tökur standa yfir á nýjum heimildarþætti nú í september samkvæmt heimildum Vísis. Þáttur Channel 4 er neðst í fréttinni og sjón er sögu ríkari. Heimilislausu einstaklingarnir hafa nær allir smitast af HIV vegna sprautunotkunar en þó er helsta fíkniefnið á staðnum málningin aurolac sem þau anda að sér úr litlum pokum. Mörg þeirra eru heimilislaus síðan einræðisherrann Nicolae Ceaușescu var hrakinn frá völdumárið 1989 en á meðan á valdatíð hans stóð bannaði hann fóstureyðingar og getnaðarvarnir sem olli því að fjöldi barna fæddist sem foreldrarnir gátu ekki hugsað um. Munaðarleysingjahæli fylltust því en þau voru mörg hver lögð niður í kjölfar þess að stjórnkerfið breyttist. Þáttagerðarmaðurinn Paraic O‘Brien fékk að heimsækja vistarverur þessara heimilislausu einstaklinga en aðstæðunum lýsti hann á þann veg að ef það væru partýhöld í helvíti væru þau sambærileg aðstæðunum þarna neðanjarðar. Hitinn er mikill og há popptónlist glymur í þröngum herbergjunum. Maður einn sem kallaður er Bruce Lee er yfir hópnum, hann sér fólkinu fyrir húsaskjóli og vernd en sér þeim jafnframt fyrir eiturlyfjum. Hann kallar sjálfan sig konung holræsanna eða King of the Sewers og klæðist keðjum á höndum og fótum. Heimildarþáttinn má sjá í myndbandinu hér að neðan og einnig á vefsíðu Channel 4 News. Myndirnar tók Radu Ciorniciuc.....
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Fleiri fréttir Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Sjá meira