Reyndi að bjarga manni frá hákarlakjafti Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2014 10:20 Margar tegundir hákarla halda til við strendur Ástralíu. Vísir/AFP
Maður lést í árás hákarls við austurströnd Ástralíu í gær, þrátt fyrir hetjudáð annars sundmanns sem dró hann á land. Mark Hickey synti fimmtán til tuttugu metra frá ströndinni til að bjarga manni sem hafði verið bitinn í hægri fótinn. Hickey sagði fjölmiðlum í Ástralíu að hann hefði séð hákarlinn og fórnarlamb hans í sjónum og synt út til hans. „Ég fór þarna út og hugsaði að ég yrði að ná þessum manni í land og ég reyndi það,“ hefur AP fréttaveitan eftir honum. Hickey náði manninum á land og reyndi endurlífgun í um tuttugu mínútur, en hann lést vegna blóðmissis í sjónum. Hákarlinn hafði bitið stórt stykki úr hægra læri mannsins. Rannsókn stendur nú yfir á sárinu svo hægt sé að greina tegund og stærð hákarlsins. Samkvæmt lögreglu á svæðinu sá áhöfn björgunarþyrlu hvítan hákarl á svæðinu eftir að árásin átti sér stað. Öllum ströndum á svæðinu var lokað í sólarhring eftir árásina. Þetta er fyrsta dauðsfallið í hákarlaárás í Ástralíu frá þriðja apríl. Þrátt fyrir að hákarlar séu fjölmargir við strendur Ástralíu hafa færri en tvö dauðsföll orðið að meðaltali árlega, síðustu ár. Í nóvember í fyrra létust tveir menn á innan við viku.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira