Ástandið í Úkraínu að verða stjórnlaust Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2014 23:31 Um 2.600 hafa fallið í átökum aðskilnaðarsinna og úkraínska hersins síðustu mánuði. Vísir/AFP
Utanríkisráðherra Þýskalands segir ástandið í austurhluta Úkraínu á góðri leið með að verða stjórnlaust. Nauðsynlegt sé að ná tökum á ástandinu til að koma í veg fyrir að bein hernaðarátök brjótist út milli Úkraínu og Rússlands. Frank-Walter Steinmeier lét orðin falla fyrr í dag. Evrópusambandið íhugar nú að beita Rússum enn frekari viðskiptaþvingunum vegna framgöngu sinnar gagnvart Úkraínu og stuðnings við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa staðfastlega neitað ásökunum NATO og fleiri um að rússneski herinn hafi haldið yfir úkraínsku landamærin til að styðja við bakið á aðskilnaðarsinnum. Steinmeier sagði þegar alvarlegt ástand hafa versnað enn frekar síðustu daga. Segir hann það mikil vonbrigði að beinar viðræður Úkraínumanna og Rússa í Hvíta-Rússlandi fyrr í vikunni hafi ekki dregið úr spennu í heimshlutanum. Vladimír Pútín Rússlandsforseti kennir Úkraínumönnum um ástandið og fyrr í dag líkti hann umsátri Úkraínuhers um Donetsk og Luhansk við umsátur nasista um Leníngrad í seinna stríði. Utanríkisráðherrar Frakklands, Svíþjóðar og Hollands tóku allir undir orð Steinmeier, en leiðtogar aðildarríkja ESB koma saman til fundar í Brussel á morgun. Ekki er útilokað að ákvarðanir um frekari viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum verði teknar á þeim fundi. Fyrr í dag boðaði NATO til neyðarfundar eftir að hafa birt gervihnattamyndir af rússneskum hersveitum innan landamæra Úkraínu. Hvatti Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, Rússa til að grípa til aðgerða þegar í stað til að draga úr spennu. Rasmussen ýjaði einnig að því að NATO myndi íhuga að veita Úkraínu aðild að bandalaginu eftir að úkraínski forsætisráðherrann Arseny Yatsenyuk tilkynnti að úkraínsk stjórnvöld hyggjast gera aðra tilraun til að gerast aðilar.Í frétt BBC segir að um 2.600 hafi fallið í átökum aðskilnaðarsinna og úkraínska hersins. Deilan um héruðin Donetsk og Luhansk spruttu upp í apríl í kjölfar innlimunar Rússa á Krímskaga í mars.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira