Fótbolti

Buffon ekki með í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gianluigi Buffon verður ekki með gegn Englandi í kvöld.
Gianluigi Buffon verður ekki með gegn Englandi í kvöld. Vísir/Getty
Gianluigi Buffon, fyrirliði og markvörður ítalska landsliðsins í knattspyrnu, verður ekki með í leiknum gegn Englandi í Manaus í kvöld vegna ökklameiðsla.

Líklegt þykir að Salvatore Sirigu, markvörður Frakklandsmeistara Paris SG, muni standa í marki Ítalíu í kvöld. Sirigu hefur leikið átta landsleiki, en aðeins einn þeirra var keppnisleikur.

Mattia Perin frá Genoa er þriðji markvörðurinn í leikmannahópi Ítalíu, en hann hefur ekki enn leikið landsleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×