Fótbolti

Króatía marði Malí | Jafnt hjá Noregi og Rússlandi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Perisic var á skotskónum í dag
Perisic var á skotskónum í dag vísir/getty
Króatía og Rússland léku bæði æfingaleiki í dag í undirbúningi sínum fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta sem hefst í Brasilíu eftir 12 daga.

Króatía lagði Malí 2-1 með tveimur mörkum Ivan Perisic. Cheick Diarra minnkaði muninn ellefu mínútum fyrir leikslok en Perisic skoraði á 15. og 65. mínútu.

Rússland mætti Noregi í Osló og skildu liðin jöfn 1-1.

Oleg Shatov kom Rússum yfir á 3. Mínútu en Anders Konradsen jafnaði fyrir Noreg þegar þrettán mínútur voru til leiksloka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×