Fótbolti

Knattspyrnumaður lést eftir tæklingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Akli Fairuz, knattspyrnumaður frá Indónesíu, lést eftir að hafa verið illa tæklaður í leik þar í landi.

Fairuz var sóknarmaður sem lék með Persiraja, félagi í efstu deild í Indónesíu. Hann fékk þungt högg á kviðinn eftir að hafa verið sparkaður niður af markverði andstæðingsins.

Fairuz var skipt af velli og horfði á leikinn frá hliðarlínunni. Ástand hans versnaði til muna næsta dag og var hann fluttur á sjúkrahús. Í ljós kom að hann var með innvortis blæðingar sem dró hann á endanum til dauða.

Hér er fjallað um málið í enskum fjölmiðlum þar sem hægt er að sjá myndband af atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×