Vandræðalegt tap hjá Kolbeini og félögum í bikarúrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2014 18:17 Leikmenn PEC Zwolle fagna einu af fimm mörkum sínum. Vísir/Getty
PEC Zwolle er hollenskur bikarmeistari í fótbolta í fyrsta sinn eftir 5-1 sigur á Ajax í bikarúrslitaleiknum sem fór fram á Feyenoord-leikvanginum í Rotterdam í dag. Kolbeinn lék allan leikinn í framlínu Ajax en liðið er á góðri leið með að vinna hollenska meistaratitilinn og er átta sætum ofar en PEC Zwolle í töflunni í deildinni. Kolbeinn þarf því að bíða lengur eftir fyrsta bikarmeistaratitli sínum með Ajax en félagið vann hann síðast vorið 2010 þegar Kolbeinn var enn leikmaður AZ Alkmaar. Ajax komst í 1-0 í leiknum með marki bakvarðarins Ricardo van Rhijn en skömmu síðar varð hálftíma töf á leiknum eftir að stuðningsmenn Ajax hentu brennandi blysum inn í vítateiginn fyrir framan mark Ajax. PEC Zwolle tók öll völd á vellinum eftir að leikurinn fór af stað að nýju og var komið í 4-1 eftir tæpan hálftíma leik. Ryan Thomas og Guyon Fernandez skoruðu báðir tvö mörk í fyrri hálfleiknum og Bram van Polen innsiglaði síðan sigurinn í upphafi seinni hálfleiksins.Það þurfti að stoppa leikinn í hálftíma vegna brennandi blysa á vellinum.Vísir/Getty
Fótbolti Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Fótbolti Fleiri fréttir „Lykilmaðurinn“ Kolbeinn úr leik næstu vikurnar Þór Ak. - Fram | Vígja nýjan völl Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Yamal felldi tár en ætti að ná HM Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Búið spil hjá Tómasi sem þarf að treysta á félaga sína til að ná titlinum Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Börsungar færast nær titlinum Í fyrsta sinn í úrslitaleikinn síðan 2020 ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Haaland skaut Manchester City á toppinn „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Bikarþynnka herjaði á Orra og Real Sociedad Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Lærisveinar Freys komnir í úrslitaleik norska bikarsins Glódís Perla þýskur meistari fjórða árið í röð Ísland með Evrópumeisturunum í riðli á EM Rosenior rekinn frá Chelsea Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum Guðný fæddi boltabarn níu mánuðum eftir EM Sjá meira