Fótbolti

Falcao ekki búinn að útiloka HM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Falcao í leik með kólumbíska landsliðinu.
Falcao í leik með kólumbíska landsliðinu. Vísir/Getty
Radamel Falcao segist þrátt fyrir allt vera vongóður um að hann geti spilað með Kólumbíu á HM í Brasilíu í sumar.

Falcao meiddist illa á hné í bikarleik með franska liðinu AS Monaco í gær og er talið að hann sé með slitið krossband.

Hann birti meðfylgjandi bréf til stuðningsmanna sinna á Instagram en þar segir hann að draumur hans um HM lifir enn. „Guð gerir það ólíklega líklegt - ég trúi á hann!“




Tengdar fréttir

HM í hættu hjá Radamel Falcao

Kólumbíski landsliðsframherjinn Radamel Falcao meiddist í gær á hné í bikarsigri Mónakó á neðri deildarliðinu Monts d'Or Azergues. Það er ekki ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en HM í Brasilíu gæti verið í hættu hjá þessum frábæra leikmanni.

Falcao þarf í aðgerð og missir líklega af HM

Franska félagið AS Monaco staðfesti í dag að sóknarmaðurinn Radamel Falcao, leikmaður kólumbíska landsliðsins, þurfi að fara í aðgerð vegna krossbandsmeiðsla í hné.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×