HM í hættu hjá Radamel Falcao Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2014 09:45 Radamel Falcao var borinn af velli. Mynd/AFP
Kólumbíski landsliðsframherjinn Radamel Falcao meiddist í gær á hné í bikarsigri Mónakó á neðri deildarliðinu Monts d'Or Azergues. Það er ekki ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en HM í Brasilíu gæti verið í hættu hjá þessum frábæra leikmanni. Radamel Falcao skoraði mark á 29. mínútu en var borinn af velli rétt fyrir hálfleik eftir harða tæklingu varnarmannsins Soner Ertek. „Leikmaðurinn fékk högg á vinstra hnéð. Við verðum að bíða eftir niðurstöðum frekari rannsókna og læknisskoðunar til að vita meira um meiðslin," segir í fréttatilkynningu frá Mónakó.Claudio Ranieri, þjálfari Mónakó var að sjálfsögðu ósáttur með að missa aðalstjörnu sína. „Þegar þú mætir neðri deildarliði þá er vitað að mótherjinn mun spila af mikill hörku. Það er eðlilegt og það sem ég segi mínum leikmönnum fyrir leikinn. Ef meiðsli Falcao eru alvarleg þá er það dómaranum að kenna. Það vilja allir spila eins og í ensku deildinni og láta leikinn fljóta. Það er ekki mögulegt hér og dómararnir verða að taka á svona grófum leik," sagði Claudio Ranieri. Radamel Falcao hefur skorað 9 mörk í 17 leikjum með Mónakó en franska félagið borgaði Atletico Madrid 50 milljónir punda í sumar. Kólumbía er í riðli með Grikklandi, Fílabeinsströndinni og Japan á HM í Brasilíu en Radamel Falcao skoraði níu mörk í undankeppninni þar sem kólumbíska landsliðið endaði í 2. sæti í Suður-Ameríkuriðlinum.Radamel Falcao sést hér meiðast á vinstra hné.Mynd/AFP
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Í beinni: Crystal Palace - Liverpool | Barist um Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Tveir látnir eftir sama hnefaleikakvöld í Tókýó Sport Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Fótbolti Leik lokið: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Í beinni: KA - ÍBV | Mikilvægur leikur í neðri hlutanum Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Ólafur skoraði en Aalesund fékk skell Ísak skoraði en Lyngby tapaði Í beinni: Crystal Palace - Liverpool | Barist um Samfélagsskjöldinn Umræða um hártog Þróttarakonu í Bestu mörkunum Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Öll mörk Patricks Pedersen í efstu deild Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool McLagan framlengir við Framara De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Völsungur kom til baka og nældi í stig Björgvin Karl: Settið sem kom að sunnan ekki í Bestu deildar klassa Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Diljá með stoðsendingu í fyrsta byrjunarliðsleiknum Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Daníel Tristan lagði upp mark en það var ekki nóg gegn toppliðinu Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum Sjá meira