Sport

Chelsea selur Essien til AC Milan

Bjarki Ármannsson skrifar
Hinn ganverski Essien í leik með Chelsea á tímabilinu.
Hinn ganverski Essien í leik með Chelsea á tímabilinu. Mynd/Getty
Enska knattspyrnufélagið Chelsea tilkynnti á vefsíðu sinni í kvöld að það hafi komist að samkomulagi við AC Milan um að selja miðvellinginn Michael Essien til ítalska stórveldisins. Fyrst þarf Essien þó að standast læknisskoðun.

Essien, sem er 31 árs, kom til Lundúnafélagsins fyrir metfé árið 2005 og hefur síðan fagnað með því mörgum af stærstu titlum knattspyrnuheimsins. Hann hefur þó ekki þótt upp á sitt besta undanfarin tvö tímabil og var í fyrra lánaður til Real Madrid.

AC Milan hefur sömuleiðis séð fífill sinn fegurri en þeir sitja sem stendur í ellefta sæti ítölsku A-deildarinnar. Félagið réð á dögunum Hollendinginn Clarence Seedorf til að snúa gengi liðsins við, en hann naut gríðarlegra vinsælda í Mílanó sem leikmaður.

Essien er þriðji leikmaðurinn sem Chelsea losar sig við á stuttum tíma. Hinn ungi Kevin de Bruyne var látinn fara til Wolfsburg í Þýskalandi og svo virðist sem ekkert geti nú stöðvað sölu stórstjörnunnar Juan Mata til erkifjendanna í Manchester United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×