Berglind næststigahæst á EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2026 11:46 Þrátt fyrir að vera að spila upp fyrir sig hefur Berglind Katla Hlynsdóttir verið meðal bestu leikmanna Evrópumóts kvenna í körfubolta U-20 ára. kkí Hin sextán ára Berglind Katla Hlynsdóttir er næststigahæst á Evrópumóti U-20 ára liða í körfubolta sem fer fram í Litáen þessa dagana.
Berglind, sem spilar með Stjörnunni hér heima, átti stórleik þegar Ísland tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum mótsins með sigri á Ítalíu í gær, 86-79. Hún skoraði 32 stig í leiknum auk þess að taka sex fráköst, gefa sjö stoðsendingar, stela boltanum tvisvar og verja tvö skot. Í riðlakeppninni á EM var Berglind með 23,7 stig að meðaltali í leik. Aðeins Gal Raviv frá Ísrael skoraði fleiri stig en Berglind, eða 31,3. Rebekka Rut Steingrímsdóttir er sjöundi stigahæsti leikmaður mótsins með sextán stig að meðaltali í leik. Sara Björk Logadóttir er svo í 14. sæti stigalistans með 12,7 stig að meðaltali í leik. Berglind skarar fram úr í fleiri tölfræðiþáttum á EM því hún er þriðji framlagshæsti leikmaður mótsins. Í leikjunum þremur í riðlakeppninni var Berglind með 24,0 framlagsstig að meðaltali. Áðurnefnd Raviv er einnig efst á blaði þar með 32,7 framlagsstig að meðaltali í leik. Berglind og stöllur hennar í íslenska liðinu mæta Tyrklandi í sextán liða úrslitum EM í dag. Leikurinn hefst klukkan 12:30 að íslenskum tíma.
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn Sonurinn skaut móður sína Sport Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Sölvi keyptur til KR Íslenski boltinn Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Enski boltinn „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Íslenski boltinn „Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti?“ Fótbolti Mbappé sár eftir HM Fótbolti Fleiri fréttir KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Sjá meira