Neymar komst ekki í FIFA lið ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2014 17:51 Neymar. NordicPhotos/Getty
Brasilíumaðurinn Neymar komst ekki í FIFA-lið ársins sem var tilkynnt á árlegri verðlaunaathöfn FIFA þar sem alþjóðasambandið gerir upp knattspyrnuárið. Úrvalsliðið er kosið af leikmönnum í alþjóðasambandi atvinnufótboltamanna og hefur liðið verið valið frá árinu 2005. Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru báðir í liðinu í sjöunda sinn. Neymar var í aðalhlutverki með brasilíska landsliðinu sem vann Álfukeppnina og hefur auk þess byrjað vel með Barcelona á Spáni þar sem hann hefur haldið uppi sóknarleik liðsins í forföllum Lionel Messi. Það er reyndar engin venjuleg samkeppni um laus sæti í framlínu FIFA-liðsins en framherjar liðsins í ár eru þeir Cristiano Ronaldo, Zlatan Ibrahimovic og Lionel Messi. Spánn á þrjá leikmenn í liðinu og Brasilía og Þýskaland eiga tvo leikmenn hvort. Frakkland, Portúgal, Argentína og Svíþjóð eiga síðan öll einn fulltrúa hvert. Það vekur líka athygli að enginn leikmaður í úrvalsliðinu spilar í ensku úrvalsdeildinni.FIFA lið ársins í fótboltanum:Markvörður: Manuel Neuer, Bayern München og ÞýskalandBakvörður: Philip Lahm, Bayern München og ÞýskalandMiðvörður: Sergio Ramos, Real Madrid og SpánnMiðvörður: Thiago Silva, PSG og BrasilíuBakvörður: Dani Alves, Barcelona og BrasilíuMiðjumaður: Andrés Iniesta, Barcelona og SpánnMiðjumaður: Xavi, Barcelona og SpánnMiðjumaður: Franck Ribery, Bayern München og FrakklandiFramherji: Cristiano Ronaldo. Real Madrid og PortúgalFramherji: Zlatan Ibrahimovic, PSG og SvíþjóðFramherji: Lionel Messi, Barcelona og Argentínu
Fótbolti Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Sviss - Ísland | Leikur sem verður að vinnast Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti „Góðu hliðarnar eru helvíti góðar“ Handbolti Bjarki Már reyndi að taka Óðin á taugum Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Fleiri fréttir FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Sjá meira