Sigurmark Kolbeins kom Ajax á toppinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2014 17:19
Kolbeinn Sigþórsson svaraði gagnrýnisröddunum í Hollandi með því að tryggja Ajax 1-0 sigur á PSV Eindhoven í fyrsta umferð hollensku úrvalsdeildarinnar eftir jólafríið. Þetta var gríðarlega mikilvægt mark fyrir Ajax í baráttunni um hollenska meistaratitilinn. Kolbeinn skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu en hann skoraði markið með laglegum skutluskalla eftir fyrirgjöf frá Lasse Schöne. Kolbeinn var tekinn af velli á 75. mínúta. Sigurinn kom Ajax upp fyrir Vitesse á markatölu en liðin hafa bæði 40 stig í efstu tveimur sætum hollensku úrvalsdeildarinnar. Twente er síðan þremur stigum á eftir Ajax og Vitesse. Þetta var fyrsta deildarmark Kolbeins síðan 19. október en hann var búinn að spila fimm deildarleiki í röð með Ajax án þess að skora og hafði ekki náð að komast á blað síðan hann snéri til baka eftir ökklameiðslin sem hann varð fyrir í umspilsleiknum á móti Króatíu í nóvember. Kolbeinn hefur nú skorað sjö mörk í 16 deildarleikjum en hann var einn þriggja Íslendinga sem skoruðu í þessari umferð því Aron Jóhannsson skoraði fyrir AZ Alkmaar og Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Heerenveen. Alfreð hefur skorað 18 deildarmörk á tímabilinu en Aron er með 12 mörk.
Fótbolti Mest lesið Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum Íslenski boltinn Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra Sport Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög Körfubolti Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Körfubolti Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Enski boltinn Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City Fótbolti „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Íslenski boltinn „Erfið og flókin staða“ Enski boltinn Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun Enski boltinn „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Handbolti Fleiri fréttir Ramsdale mættur til Newcastle Eggert Aron skoraði og lagði upp í stórsigri Brann „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Davíð Snær og Guðlaugur Victor lögðu upp mörk „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Arnór og Ísak skoruðu í stórfurðulegum tíu marka leik Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Sigur í fyrsta leik hjá Jóhannesi Kristni Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Dönsk þrenna á Akureyri, dramatík í Víkinni og óheppni á Hlíðarenda Newcastle hafnar tilboði Liverpool Niko markahæstur og Gylfi stoðsendingahæstur í Sambandsdeildinni Fáránleg hegðun á Hlíðarenda: Plastglas í höfuð og miðfingur á loft Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Gaf tannlækninum teinanna sína Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Sjá meira