Gunnleifur sýndi ákvörðuninni skilning Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. janúar 2014 13:51 Gunnleifur Gunnleifsson.
Gunnleifur Gunnleifsson á enn góðan möguleika á að halda sæti sínu í A-landsliði karla þrátt fyrir að hafa ekki verið valinn í hópinn fyrir æfingaleikinn gegn Svíum síðar í mánuðinum. Þetta sagði Guðmundur Hreiðarsson, markvarðaþjálfari íslenska landsliðsins, á blaðamannafundi KSÍ í morgun. Landsliðshópurinn fyrir leikinn gegn Svíum var þá kynntur en liðin mætast í Abú Dabí þann 21. janúar næstkomandi. „Við vitum fyrir hvað Gunnleifur stendur,“ sagði Guðmundur á fundinum í morgun. „Við töluðum við hann og hann sýndi þessari ákvörðun skilning. Við þurfum ekki á honum að halda í þessum leik og ákváðum að nýta tækifærið til að gefa ungum markverði tækifæri.“ Rúnar Alex Rúnarsson, leikmaður KR og U-21 landsliðs Íslands, var valinn ásamt Hannesi Þór Halldórssyni sem hefur verið aðalmarkvörður Íslands að undanförnu. „Það má þó segja um Gulla að hann er einn mikilvægasti leikmaðurinn í okkar liði, þó svo að hann hafi ekki spilað leik í síðustu undankeppni. Hann gegnir mjög mikilvægu hlutverki í undirbúningnum og styður vel við hópinn.“ „Ef hann stendur sig áfram vel þá á hann góðan möguleika á að halda sæti sínu í ladnsliðinu því hann er klárlega annar okkar tveggja bestu markvarða.“ Guðmundur sagði að aðrir markverðir hafi komið til greina, svo sem Ögmundur Kristinsson og Haraldur Björnsson. „En við vorum sammála um að gefa U-21 markverðinum tækifæri á að spila með A-landsliðinu og kynnast því umhverfi.“
Fótbolti Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Orri Steinn fær portúgalska samkeppni Breiðablik og Víkingur vita hverjum þau mæta næst Rashford með sitt fyrsta mark fyrir Barcelona Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Barist um undirskrift Nunez Tómas Bent seldur til Skotlands Ronaldo vill gera Greenwood aftur að liðsfélaga „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Hato mættur á Brúnna Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Sjá meira