Annar heilbrigðisstarfsmaður greinist með ebólu í Texas Atli Ísleifsson skrifar 15. október 2014 10:17 Bandarísk heilbrigðisyfirvöld fylgjst nú með 48 mögulegum smitberum, Vísir/AFP
Heilbrigðisyfirvöld í Texas hafa staðfest að annar heilbrigðisstarfsmaður hafi greinst með ebólu. 26 ára hjúkrunarfræðingur er nú þegar í meðhöndlun eftir að hann smitaðist af ebólu eftir að hafa hlúið að ebólusmituðum Líberíumanni sem lést af völdum veirunnar í síðustu viku.Í frétt BBC segir að bandarísk heilbrigðisyfirvöld fylgist nú með 48 mögulegum smitberum, einstaklingum sem Líberíumaðurinn hafði verið í snertingu við áður en honum var komið fyrir í einangrun og heilbrigðisstarfsmönnum sem sinntu honum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) áætlar að 4.447 manns hafi látist af völdum veirunnar síðustu mánuði, flestir í vesturhluta Afríku. Hjúkrunarfræðingurinn Nina Pham smitaðist á sjúkrahúsi í Dallas þar sem hún meðhöndlaði Líberíumanninn Thomas Duncan, sem var fyrsti maðurinn til að greinast með veiruna á bandarískri jörð. Læknar segja ástand Pham vera gott. Heilbrigðisstarfsmaðurinn sem hefur nú greinst með veiruna hefur ekki verið nafngreindur. Sá meðhöndlaði þó einnig Duncan á Texas Health Presbyterian sjúkrahúsinu og er nú haldið í einangrun. Í tilkynningu frá sjúkrahúsinu segir að rætt hafi verið við sjúklinginn um leið og hann sýndi einkenni veirunnar til að greina aðra mögulega smitbera.
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira