Norðmenn búa sig undir mikið berghlaup Atli Ísleifsson skrifar 28. október 2014 15:30 Mannen er 1.294 metra hátt fjall í sveitarfélaginu Rauma í Romsdal. Búið er að rýma nálæga bæi. Vísir/AFP
Norskir jarðfræðingar reikna með að stærðarinnar berghlaup verði í fjallinu Mannen í sveitarfélaginu Rauma næstu klukkustundirnar. Reiknað er með að um 120 þúsund rúmmetrar af grjóti muni hlaupa en mikil gliðnun hefur orðið í fjallinu síðustu ár. Búið er að rýma nálæga bæi og lest sem gengur undir fjallinu er hætt að ganga. Mannen er 1.294 metra hátt fjall í Romsdal, um miðja vegu milli Bergen og Þrándheims, og hafa vísindamenn fylgst með fjallinu vegna yfirvofandi berghlaups frá árinu 2009. Í byrjun mánaðarins var áætlað að um 40 þúsund rúmmetrar gætu hlaupið úr um 1.000 metra hæð, en magnið er nú áætlað um 120 þúsund rúmmetrar sem samsvarar um 12 þúsund vörubílahlössum. Mikil úrkoma síðustu daga hefur valdið því að reiknað er með berghlaupi á hverri stundu. „Rannsóknir sýna að fjallið þolir minni og minni úrkomu. Fjallið verður veikara og veikara,“ segir jarðfræðingurinn Lars Harald Blikra í samtali við Verdens Gang. Norskir fjölmiðlar hafa sýnt beint frá fjallinu síðustu sólarhringa.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira