Aron spilaði og Bandaríkin lögðu Gana 16. júní 2014 17:19 Aron á ferðinni í leiknum. Vísir/afp
Aron Jóhannsson fagnaði sigri í sínum fyrsta leik á HM í kvöld. Bandaríkin lögðu þá Gana, 2-1, en sigurinn var ekki beint sanngjarn. Aron kom af bekknum á 23. mínútu. Okkar maður Aron Jóhannsson byrjaði leikinn á bekknum og þeir Clint Dempsey og Jozy Altidore byrjuðu leikinn í fremstu víglínu. Leikurinn byrjaði með miklum látum því Clint Dempsey kom Bandaríkjamönnum yfir eftir aðeins 32 sekúndur. Hann fékk sendingu í teiginn og þökk sé hörmulegum varnarleik Ganamanna náði hann að komast í opið skot sem hann kláraði vel. Fimmta fljótasta mark í sögu HM. Á 23. mínútu meiddist Jozy Altidore er hann tognaði aftan í læri. Í stað hans kom Aron Jóhannsson og varð um leið fyrsti Íslendingurinn til þess að spila á HM. Ólíklegt er að Altidore jafni sig á þessum meiðslum áður en HM klárast og Aron gæti því vel verið í byrjunarliðinu í næsta leik. Þrátt fyrir nokkuð fjör tókst liðunum ekki að bæta við mörkum og Bandaríkin leiddu 1-0 í hálfleik. Ganamenn höfðu gríðarlega yfirburði í síðari hálfleik og sóttu af krafti. Hvað eftir annað komu þeir sér í álitlega stöðu en náðu ekki að skora. Lítið að frétta í sóknarleik Bandaríkjamanna og Aron takmarkað í boltanum. Átta mínútum fyrir leikslok tókst Gana loksins að jafna. Frábært spil í teignum og Andre Ayew skorar með laglegu skoti. Fyllilega verðskuldað hjá Gana sem var með yfirburði. Bandaríkjamenn lögðu ekki árar í bár og John Brooks kom þeim yfir fjórum mínútum fyrir leikslok með skalla eftir hornspyrnu. Skelfilega illa dekkaður og þakkaði pent með því að stanga knöttinn í netið. Það reyndist vera sigurmark leiksins.Hér má sjá er Aron kemur af bekknum. Söguleg stund. Hér að ofan má sjá fleiri myndir af Aroni í leiknum.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti Leik lokið: Ísland - England 0-1| Hetjuleg barátta í seinni dugði ekki til Fótbolti Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Enski boltinn Vignir í dauðafæri og nýtir sér leynivopn á Íslandi Sport Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Enski boltinn Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Íslenski boltinn Magaplástrar kínverskra íþróttakvenna vekja furðu Sport Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Íslenski boltinn Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einnkunnir íslenska liðsins: Flott frammistaða í seinni hálfleik „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ „Settum meiri pressu á þær í seinni hálfleik“ Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Chelsea - Manchester United | Stórleikur á Brúnni Leik lokið: Ísland - England 0-1| Hetjuleg barátta í seinni dugði ekki til Hörmungar Brann halda áfram Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Miðvörður skoraði úr hjólhestaspyrnu í mikilvægum sigri Leeds Byrjunarliðið gegn Englandi: Fjórar breytingar og afmælisbarnið á bekkinn Bjarki Steinn nálgast ítölsku úrvalsdeildina á ný Leno bjargaði stigi fyrir Fulham gegn Brentford Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Aðeins einn miðvörður til taks hjá United fyrir stórleikinn „Þær leita rosalega mikið upp kantana“ Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum „Fínt fyrir okkur en kannski ekki jafn fínt fyrir Englendinga“ Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ „Kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Slagsmál í Íslendingaslag í Svíþjóð „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Sjá meira