Unglingur í fangelsi fyrir að neita að mæta í skólann Kjartan Atli Kjartansson skrifar 8. september 2014 12:48 Drengurinn flutti ásamt fjölskyldu sinni frá New York til Flórída. Vísir/Getty
Fjórtán ára unglingur, búsettur í Flórída-fylki í Bandaríkjunum, var fangelsaður fyrir að neita að fara í skólann. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum sögðu frá því um helgina að móðir 14 ára drengs hafi í síðustu viku hringt á lögregluna vegna þess að sonur hennar vildi ekki fara í skólann. Hún tjáði lögreglu að hún væri orðin úrræðalaus gagnvart drengnum; Hún hafi tekið tölvuna hans, snjallsíma og takmarkað aðgang hans að netinu í refsingarskyni fyrir að skrópa. Drengurinn lét ekki segjast og brá því móðir hans á það ráð að hringja á lögregluna sem mætti á staðinn og handtók drenginn.Fréttastofa ABC vitnar í Kenneth Carver, varðstjóra hjá lögreglunni í St. Augustine í Florda. Hann sagði drenginn hafa tjáð lögreglumönnum að hann vildi ekki fara í skóla í Flórída, fjölskyldan var nýflutt þangað en hafði áður búið í New York. Strákurinn vildi fá að halda áfram í skóla þar í borg. Móðirin tjáði lögreglunni að sonur hennar hafi einnig skrópað þegar hann var í skóla í New York og að einkunnir hans hafi þegar verið byrjaðar að dala. Þegar Carver sagði drengnum að hann yrði handtekinn fyrir að mæta ekki í skólann svaraði hann: „Gerðu það sem þú þarft að gera, ég ætla ekki í skólann.“ Hann þurfti að gista fangaklefa lögreglunnar fyrst um sinn en var síðar fluttur á unglingaheimili. Hann er nú kominn aftur í umsjá móður sinnar. „Hugmyndin var að fá dómara til að skipa drengnum að mæta í viðtöl og meðferð þar sem honum verður hjálpað að aðlagast nýju umhverfi. Mamma hans var bara að reyna að fá hann til að gera það sem er rétt,“ segir Chuck Mulligan, sem er annar yfirmaður hjá lögreglunni í Flórída.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira