Erlent

Þrettán slasaðir eftir eldingu í Noregi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Þrettán slösuðust þegar eldingu sló niður í hóp ungmenna á Dvergsey við Kristiansand í Noregi í dag. Björgunarsveitir fluttu ungmennin á spítala en meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg.

Um sjötíu og átta nemendur og sex kennarar  voru í árlegri haustferð í Dvergsey þegar eldingunni sló niður.  Mikill viðbúnaður var á svæðinu og voru bátar sendir til að sækja fólkið þar sem mikið óveður var á svæðinu og óttast var frekari eldingar. Þeir sem slösuðust kvörtuðu einna helst undan ógleði og höfuðverk, en sem fyrr segir eru meiðsl ekki talin alvarleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×