Yfirsteig enskuhræðslu í beinni sjónvarpsútsendingu Jón Júlíus Karlsson skrifar 5. september 2013 07:00 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir „
Ég tók stórt skref í að sigrast á hræðslu minni að tala ensku á almannafæri og skrefið var það stórt að ég gerði það fyrir allan heiminn,“ skrifaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrum formaður Heimdallar, á Facebook-síðu sína í fyrradag. Hún var þátttakandi vefsjónvarpsþættinum The Stream á Al Jazeera sjónvarpstöðinni á mánudagskvöld þar sem hún tók þátt í því að spyrja Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, út í endurreisn íslensks efnahagslífs eftir hrun. Þátturinn var á ensku sem hefur reynst Áslaugu erfið í gegnum tíðina. „Enska var alltaf eina fagið sem reyndist mér erfitt og eina fagið sem ég féll í á framhaldsskólagöngunni,“ segir Áslaug í samtali við Vísi.is. „Ég hef í kjölfarið verið mjög feimin við að tala ensku á almannafæri. Áður fyrr þegar ég var erlendis héldu margir að ég væri feimin en það hef ég aldrei verið. En ég hef hinsvegar alltaf verið mjög smeyk að tala ensku fyrir framan aðra og því var þetta nokkuð stórt skref fyrir mig, mér hefði ekki dottið í hug að taka þetta að mér fyrir nokkrum árum.“ Áslaug hélt fyrir nokkrum árum í enskunám í Cambridge í Englandi og hefur verið að bæta sig jafnt og þétt í enskunni. Hún segist hafa verið búin að undirbúa sig vel fyrir þáttinn á Al Jazeera. Hún sat heima í sofunni hjá sér og spurði Sigmund Davíð spurninga í gegnum Google +. „Þetta gerði mig alveg vel stressaða. Maður lærir hins vegar ekkert án þess að reyna á sig og demba sér í djúpu laugina. Ég var búin að undirbúa spurningarnar ágætlega og lesa þær nokkrum sinnum fyrir framan spegilinn. Ég verð mjög sjaldan stressuð fyrir því að koma fram en annað á við þegar ég þarf að gera það á ensku. Ætli það eigi þó ekki við um fleiri,“ segir Áslaug. Í myndbandinu hér að neðan má sjá The Stream þáttinn í heild sinni. Áslaug spurði Sigmund tvívegis í þættinum og var síðari spurninginn nokkuð krefjandi fyrir forsætisráðherann.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Líkt og að missa bróður Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Sjá meira