Fótbolti

Enn eitt dauðsfallið í Brasilíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
22 ára verkamaður lést þegar hann féll 35 metra í vinnuslysi við byggingu knattspyrnuleikvangs í Brasilíu.

Þó nokkrir hafa látist við framkvæmdir á leikvöngum í Brasilíu en úrslitakeppni HM fer þar fram næsta sumar.

Vinna við leikvangana tólf sem verða notaðir í keppninni hefur gengið illa og vinna við þá öll á eftir áætlun.

Unnið er dag og nótt við leikvanginn þar sem slysið átti sér stað. Sá heitir Amazon-leikvangurinn og er í borginni Manaus.

Þann 27. nóvember létust tveir þegar krani féll við byggingu Arena-leikvangsins í Sao Paulo. Opnunarleikur keppninnar fer þar fram þann 12. júní næstkomandi.

Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, mun grípa til aðgerða verði framkvæmdir ekki komnar á áætlun um áramótin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×