Þjálfarinn vill Dagnýju til Japans Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. nóvember 2013 07:00 Berglind (t.v.) og Dagný með verðlaunaskildi sína. Mynd/Aðsend
Dagný Brynjarsdóttir tryggði háskólaliði Florida State sigur í úrslitaleik Atlantshafsdeildarinnar á sunnudaginn. Landsliðskonan hefur farið á kostum á tímabilinu, raðað inn mikilvægum mörkum og verið heiðruð fyrir frammistöðuna. „Ég var einn af lykilmönnum liðsins í fyrra en þurfti að rísa upp í ár og leiða liðið áfram,“ segir Dagný, sem er á þriðja ári sínu við skólann. Sex lykilmenn útskrifuðust úr skólanum í vor og því var ábyrgðin mikil á herðum Dagnýjar sem býr vel að reynslu sinni með landsliðum Íslands. Dagný og félagar töpuðu aðeins einum leik í Atlantshafsdeildinni í vetur og þykja þær sigurstranglegar fyrir úrslitakeppnina sem fram undan er. „Við komumst í undanúrslit síðustu tvö ár og töpuðum í bæði skiptin,“ segir Dagný. Hún telur möguleika liðsins þó mikla í ár. Liðið sé sterkt, haldi boltanum vel og hin liðin þreytist. Dagný hefur frá árinu 2007 spilað með Val en undanfarin þrjú ár þurft að halda utan til Bandaríkjanna á miðju tímabili. Hún segir ekkert ákveðið hvar hún spili næsta sumar. „Ég er samningslaus eins og er. Það eru nokkur lið búin að tala við mig en ég sagði öllum að ég ætlaði að einbeita mér að skólanum og klára deildina,“ segir Dagný. Fleira komi til greina en að spila á Íslandi. Þjálfari hennar vill að hún æfi með akademíu í Japan og þá hefur hún sjálf áhuga á að reyna fyrir sér í sumardeild vestanhafs. „Ég ætla ekki að byrja að hugsa um þetta fyrr en í desember.“ Auk Dagnýjar hefur Berglind Björg Þorvaldsdóttir staðið sig vel í fremstu víglínu liðsins. „Hún er farin að banka á landsliðsdyrnar. Það eru stelpur heima valdar í liðið og deildin hérna er sterkari en deildin heima.“
Fótbolti Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Sjá meira