Fékk 17.106 SMS Kristjana Arnarsdóttir skrifar 24. júlí 2013 10:31 Hér siglir túrstjórinn, Jón Þór, með Húna í baksýn. „
Drengurinn bað fólk um að senda mér sms og þakka fyrir túrinn. Ég er ennþá að fá SMS,“ segir Jón Þór Þorleifsson, túrstjóri áhafnarinnar á Húna. Lokatónleikar áhafnarinnar á Húna fóru fram á Akureyri á laugardagskvöldið. Undir lok tónleikanna ávarpaði Mugison landsmenn og bað þá um einn greiða: „Áður en við förum í næsta lag langar mig að biðja ykkur um einn greiða. Þeir sem eru með GSM-síma, bæði þeir sem eru hér og landsmenn allir, takið upp símann og sendið SMS á hann Jón Þór sem að nennti að standa í þessu. Það er gaman að spila á gítar en það er erfitt að plana svona. Sendið „takk“ á Jón Þóri fyrir að nenna þessu,“ sagði Mugison og þuldi upp símanúmer túrstjórans í beinni útsendingu. Landsmenn létu ekki segja sér þetta tvisvar og fóru smáskilaboðin að hrannast inn. „Ég hringdi í Símann og fékk að vita SMS-fjöldann. Tæknistjórinn sagði mér að þetta hefðu verið 17.106 SMS allt í allt,“ segir Jón Þór, sem segist enn fá SMS á 30-60 mínútna fresti. „Ég þarf náttúrlega að eyða hverju einasta skilaboði svo ég er búin að lesa þau öll. Í fluginu frá Akureyri til Reykjavíkur náði ég að eyða 800 skilaboðum.“ Þó svo að Mugison hafi einungis beðið landsmenn um að senda einfaldar þakkir á Jón Þór voru sumir sem krydduðu örlítið upp á skilaboðin. „Ég fékk alls konar skemmtileg skilaboð. Í einum þeirra stóð „Guð blessi þín störf í þágu þjóðarinnar,“ og annar bað um uppklappslag og sagðist vera með önd í gíslingu sem hann myndi ekki sleppa nema við spiluðum eitt lag til viðbótar.“ Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdarstjóri Landsbjargar, var rosalega ánægður með framtakið. „Þetta var í raun og veru miklu stærra og meira en við þorðum að vona. Það söfnuðust tæpar 24 milljónir sem er afskaplega kærkomin búbót fyrir björgunarsveitirnar.“ Spurður að því hvort til standi að endurtaka verkefnið segir Jón Svanberg það alveg óljóst. „Við hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg skoðum öll fjáröflunarverkefni sem koma inn mjög vel og svo er það bara vegið og metið hvað er gert.“
Mest lesið Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Tónlist Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Lífið „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Fleiri fréttir Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Sjá meira