Félagi Hannesar reyndi að svindla Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2013 06:30 Hannes Sigurðsson.
Austurríska úrvalsdeildarfélagið SV Grödig hefur þurft að reka tvo leikmenn úr sínum röðum þar sem annar þeirra reyndi að hagræða úrslitum leikja liðsins. Hafnfirðingurinn Hannes Þ. Sigurðsson er á mála hjá félaginu. Í síðustu viku var Dominique Taboga handtekinn en hann var ásakaður um að hafa reynt að hagnast á veðmálabraski og þar að auki reynt að fá nokkra félaga sína til að aðstoða sig við það. Taboga var umsvifalaust rekinn frá félaginu en stuttu síðar sögðu forráðamenn Grödig upp samningi annars leikmanns, Thomas Zündel, fyrir meintan trúnaðarbrest. Taboga mun hafa sent Zündel skilaboð og spurt hann hvort hann vildi taka þátt í „verkefni“ með sér. Zündel neitaði en fór ekki með málið lengra, eins og hann hefði átt að gera að mati forráðamanna Grödig. Nýliðar Grödig hafa náð frábærum árangri í austurrísku úrvalsdeildinni í vetur og eru nú í fjórða sæti. Liðið tapaði þó fyrir Admira Wacker í fyrrakvöld, 5-3, þar sem þrír leikmenn Grödig fengu að líta rauða spjaldið. Með sigri hefði liðið komist upp í annað sæti deildarinnar. Hannes var ónotaður varamaður í leiknum en hann hefur einu sinni fengið tækifæri í byrjunarliði félagsins í deildinni í vetur. Hannes hefur skorað eitt mark í þeim sex leikjum þar sem hann hefur komið við sögu.
Fótbolti Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti EM í dag: Flensuleikur Vals og stemningslausir Svíar Handbolti Fleiri fréttir Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Sjá meira