Rúmur milljarður í húfi fyrir KSÍ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. október 2013 00:01 Fagnað í Ósló. Mynd/Vilhelm
Tækist íslenska karlalandsliðinu hið ótrúlega, að tryggja sér sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins, myndi rekstrarumhverfi Knattspyrnusambands Íslands breytast til muna. Enn er mikið verk að vinna en fjárhagslegur ávinningur yrði mikill. Knattspyrnusambönd þjóðanna 32 sem komast í lokakeppni HM í Brasilíu árið 2014 fá háar fjárhæðir í styrki. Heildarupphæð styrkja verður í takt við þá sem veitt var árið 2010 í Suður-Afríku. Reikna má með því að skiptingin á milli þjóðanna verði með svipuðum hætti. Liðin sem komust í lokakeppnina árið 2010 fengu eina milljón Bandaríkjadala í undirbúningsstyrk. Þau sem féllu út í riðlakeppninni fengu átta milljónir dala til viðbótar. Níu milljónir dala á gengi dagsins í dag svara til rúmlega eins milljarðs íslenskra króna. Enn hærri upphæðir eru veittar eftir því sem liðin komast lengra. Krýndir heimsmeistarar fá um 3,6 milljarða króna í sinn hlut. Til samanburðar var rekstrarkostnaður KSÍ árið 2012 tæpar 800 milljónir króna. Innkoma var aðeins meiri eða um 848 milljónir og því skilaði KSÍ 48 milljóna króna hagnaði. Stærsti tekjuliðurinn er í flokknum styrkir og gjöld eða um fimm hundruð milljónir. Framlag þess flokks myndi þrefaldast tækist okkar mönnum hið ótrúlega.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Fleiri fréttir Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Sjá meira