Innlent

Leigusala gert að rýma húsið

Íbúarnir óttast að verða bornir út.
Íbúarnir óttast að verða bornir út.
Félagið Drómi, sem á húsið í Vesturvör 27 þar sem íbúum hefur verið sagt upp leigusamningum og gert að yfirgefa bygginguna, undirstrikar, vegna fréttar í Fréttablaðinu í gær um „hremmingar íbúanna“, að félagið sé ekki leigusali fólksins.

Drómi kveðst enn ekki hafa fengið húsið afhent „vegna erfiðleika leigusalans við að rýma umrædda eign“. Vesturvör 27 sé iðnaðarhúsnæði í mjög bágu ásigkomulagi og óhæft til útleigu, meðal annars vegna skorts á flóttaleiðum við eldsvoða. „Drómi hefur ítrekað krafist þess gagnvart leigutaka að húsnæðið verði rýmt af þessum sökum.“- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×