Stjórnarskrármálið úr nefnd Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 22. janúar 2013 07:00 Illugi gunnarsson og Valgerður Bjarnadóttir
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar stefnir að því að taka frumvarp um nýja stjórnarskrá úr nefnd í dag. Málið er á dagskrá Alþingis á fimmtudag. Fulltrúar frá Samfylkingunni funduðu með stjórnarandstöðunni um málið í gær, en vegna forfalla mætti enginn fulltrúi Vinstri grænna á fundinn. Valgerður H. Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir málið ekkert hafa breyst á fundinum. Menn hafi þó náð að skiptast á skoðunum. En verður málið tekið úr nefnd í dag? „Já, við höfum stefnt að því. Við þurfum að sjá hvernig staðan er í fyrramálið [í dag]. Það vantar einhver nefndarálit." Það er einmitt það sem Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sem sat fundinn í gær, gagnrýnir harðlega. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi fengið nefndir til að skila áliti, sem séu ekki öll fram komin. „Þrátt fyrir það er meirihlutinn búinn að ákveða hvaða breytingartillögur hann leggur fram og að taka málið úr nefnd á morgun [í dag]." Illugi segir þetta í takt við annað í málinu og svona vinnubrögð hefðu ekki verið viðhöfð við lagafrumvarp, hvað þá um breytingu á sjálfri stjórnarskránni. Hann segir ekkert hafa komið fram á fundinum í gær í sjálfu sér. „Þar kom ekkert nýtt fram, annað en það að staðfest var að það væri vilji meirihlutans að gera allsherjar breytingar á stjórnarskránni."
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira