"Ef þessu yrði beitt hefði það afdrifaríkar afleiðingar" 6. júní 2013 14:24 "
Þetta [vopn, innsk. blm.] er notað gegn manninum sem ráðist er inn á, og hann beitur ofbeldi og hann þvingaður til þess að sýna árásarmönnunum hvar vopnin eru geymd,“ segir Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn. Fjórir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi eftir að ráðist var á eldri mann á heimili hans í Grafarvogi um helgina. Lögreglan hélt blaðamannafund í dag þar sem blaðamönnum gafst kostur á að mynda þau vopn sem fundust í húsleitum. „Þessi skotvopn eru tekin þaðan og farið með þau í afvikinn stað í Hafnarfirði og komið fyrir hagalega í geymslu inn í innréttingu, komið þannig fyrir að það sé ekki nokkur leið í fljótu bragði að sjá að þarna væru vopn falin ef lögreglan kæmi,“ segir Karl Steinar. Í kjölfarið fór lögreglan í þrjár húsleitir, þar á meðal í félagsheimili Outlaws, þar sem nokkur vopn til viðbótar finnast. „Í annari húsleit sem tengist þeim félagsskap, er tæki sem er samblanda af hnúajárni og kaststjörnu. Þetta er flugbeitt, það þarf ekki að spyrja að því ef þessu tæki yrði beitt gegn einstakling að það hefði afdrifaríkar afleiðingar,“ segir Karl Steinar. Árásin er enn í rannsókn hjá lögreglu en fjórir ungir karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi fram á mánudag vegna þess. Karl Steinar segir það staðreynd að glæpagengi hér á landi séu frekar að vopnbúast sem megi meðal annars sjá á því mikla magni af vopnum sem lögreglan hefur lagt hald á undanfarin ár. En frá árinu 2007 hefur hún haldlagt 463 skotvopn í 223 málum. Karl Steinar segir þó að glæpagengi séu miklu veikari nú heldur en þau voru fyrir árið 2011 þegar lögreglan hóf harðar aðgerðir gegn þeim.Í myndskeiðinu hér að ofan má sjá Karl Steinar fara í gegnum vopnin sem fundust í húsleitunum.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira