Fótbolti

Aron: Það besta í stöðunni fyrir mig og fjölskyldu mína

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Forsíðan á heimasíðu bandaríska knattspyrnusambandsins er helguð Aroni Jóhannssyni:
Forsíðan á heimasíðu bandaríska knattspyrnusambandsins er helguð Aroni Jóhannssyni: Mynd/http://www.ussoccer.com/
Aron Jóhannsson er í ítarlegu viðtali á heimasíðu bandaríska landsliðsins í fótbolta en hann spilar væntanlega fyrsta landsleik sinn fyrir Bandaríkin á eftir þegar liðið mætir Bosníu í vináttulandsleik. Forsíðan á heimasíðu bandaríska knattspyrnusambandsins er helguð Aroni Jóhannssyni og ákvörðun hans.

Aron fer yfir ferill sinn, tengsl sín við Bandaríkin og ástæðu þess að hann valdi að spila fyrir Bandaríkin í stað þess að spila fyrir íslenska landsliðið.

Aron segir að hann hafi eytt fyrstu þremur til fjórum árum sínum í Bandaríkjunum á meðan að foreldrar hans voru þar við nám en eins að fjölskyldan hafi farið í frí til Bandaríkjanna næstum því á hverju ári. Hann segir líka frá árinu sem hann var í námi við IMG Academy í Bradenton.

En hvað segir Aron um ákvörðunina að spila frekar fyrir Bandaríkin. „Ég tók mér góðan tíma í að ákveða mig. Ég talaði um þetta við fjölskylduna mína og þetta er mjög persónuleg ákvörðun fyrir mig. Ég tel að þetta sé það besta í stöðunni fyrir mig og fjölskyldu mína," segir Aron en hvað með viðbrögð fjölskyldu hans á Íslandi?

„Þau voru ánægð fyrir mína hönd. Þau lögðu alltaf áherslu að ég tæki þá ákvörðun sem kæmi sér best fyrir mig sjálfan," segir Aron en hvernig leikmaður er hann?

„Ég er dæmigerður framherji. Ég reyni að vera öflugur í teignum, sjá fyrir hvert boltinn fer og reyna að vera á réttum stað á réttum tíma," segir Aron. Hann lýsir einnig skoðun sinni á þróun fótboltans í Bandaríkjunum.

„Þegar ég tók þessa ákvörðun þá fór fólk að tala um að fótboltinn væri alltaf að vera stærri og stærri í Bandaríkjunum. MLS-deildin er alltaf að verða stærri og allir vita að landsliðið er að verða betra. Ég er ánægður með að fá að taka þátt í því," segir Aron sem tjáði sig líka um landsliðsþjálfarann Jurgen Klinsmann.

„Það er frábært að fá að æfa með þjálfara sem hefur gert þetta allt saman sjálfur. Hann getur hjálpað mér að verða betri leikmaður. Landsliðið er aðeins saman í nokkra daga en hann getur gefið mér góð ráð sem ég get tekið með mér aftur til míns félagsliðs," segir Aron sem var að sjálfsögðu spurður út í viðurefnið Aron Bacon vegna þess að mörgum finnst hann vera svo líkur leikaranum Kevin Bacon.

Það er hægt að sjá allt viðtalið við Aron með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×