Vetrarblíða í Laugardalnum annað kvöld Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. nóvember 2013 22:45 Mynd/Samsett „
Allar áætlanir okkar hafa gengið upp þrátt fyrir mikinn vind og leiðindi,“ segir Jóhann Gunnar Kristinsson, vallarstjóri á Laugardalsvelli. Flautað verður til leiks í viðureign Íslands og Króatíu í fyrri leik karlalandsliða þjóðanna um laust sæti á HM í Brasilíu klukkan 19 annað kvöld. Óvissa hefur verið um veður á leikdag og jafnvel rætt um að fresta gæti þurft leiknum. Þær áhyggjur virðast úr sögunni.Þegar þetta er ritað hljóðar spáin annað kvöld upp á örlitla golu, litla sem enga úrkomu og hitastig í kringum tvö stig. Aðaláhyggjuefni vallarstjórans var að halda vellinum frostfríum. Af þeim sökum var leigður búnaður ásamt fjórum starfsmönnum frá Bretlandi til að verja völlinn. Dúkurinn hefur legið yfir Laugardalsvelli í dag en ekki hefur verið blásið heitu lofti undir hann vegna hvassviðris. Jóhann Gunnar segir að reynt verði að lyfta dúknum og blása hita undir hann í nótt eða þá í fyrramálið. „Við munum meta það á fundum okkar í fyrramálið hvenær rétt sé að taka dúkinn af vellinum,“ sagði Jóhann Gunnar í samtali við Vísi í kvöld. Hans vilji sé sá að halda dúknum á eins lengi og kostur er og þá sérstaklega ef kalt verður í veðri, rigning eða snjókoma. „Hann yrði fjarlægður í síðasta lagi tveimur tímum fyrir leik,“ segir Jóhann Gunnar. Hann er ánægður með veðurspána fyrir morgundaginn og sömuleiðis sáttur með hvernig til hefur tekist að halda vellinum í standi fyrir stórleikinn á morgun. Grasið á vellinum var slegið og línurnar málaðar kvöldið áður en dúkurinn var settur á undir lok síðustu viku. „Völlurinn er í raun tilbúinn,“ segir Jóhann Gunnar. Leikurinn annað kvöld hefst klukkan 19. Guðmundur Benediktsson lýsir honum beint á Bylgjunni auk þess sem bein textalýsing verður frá leiknum hér á Vísi.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Íslenski boltinn „Sem betur fer slapp þetta“ Íslenski boltinn Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Fótbolti Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti Enski boltinn Sinner tók fram úr goðsögnum með glæstum sigri Sport Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ Íslenski boltinn „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sagan segir að KR verði meistari Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ „Sem betur fer slapp þetta“ „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Ísak og Sverrir fengu báðir heilahristing „Ekki í fyrsta sinn sem við komum til baka á þessum velli“ „Eigum að díla betur við svona stöður“ Inter er Ítalíumeistari „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Tottenham kom sér upp úr fallsæti Sjáðu markmann leggja upp mark gegn liði Kristians Glódís Perla úr leik í Meistaradeildinni Daníel Freyr lagði upp í sigri gegn Viktori Bjarka Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum Ferguson fluttur á spítala Mark Hákonar dugði skammt Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Isak aftur meiddur Eyjakonan lagði Sveindísi Sjá meira