Innlent

„Er fólk ekki betur innrætt en þetta?“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Það voru athugasemdir við frétt á Vísi sem ollu því að Bubbi fékk nóg.
Það voru athugasemdir við frétt á Vísi sem ollu því að Bubbi fékk nóg. fréttablaðið/valli

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens bloggar í dag undir fyrirsögninni „Nú er nóg komið“, og segir það daglegt brauð að fólk sé „atað auri og skít á kommentakerfum dagblaðanna“ fyrir það eitt að hafa skoðanir.

Það voru athugasemdir við frétt á Vísi sem ollu því að Bubbi fékk nóg, en fréttin var um skoðun Bubba á Eurovision-þátttöku Eyþórs Inga.

„Hvað fær fólk til þess að opinbera getuleysi sitt í að lesa það sem skrifað er? Það var alveg skýrt að ég gerði ekkert annað en hrósa Eyþóri, sem besta söngvara landsins og telja hann of góðan fyrir þessa keppni. Það stendur skýrum stöfum.“

Bubbi segist hafa reynt að horfa fram hjá því hvernig sumir skrifa um hann á kommentakerfunum, en engin manneskja eigi að láta bjóða sér það að vera ausin svívirðingum fyrir skoðanir sínar.

„Dónaskapurinn í athugasemdakerfunum fær mann til að blöskra. Í sumum tilfellum er fólk ærumeiðandi og ummælin vekja hjá mér undrun og sorg.“

Bubbi segir í bloggfærslunni að umræðan hafi stigversnað frá efnahagshruninu, og nefnir því til stuðnings tvö nýleg dæmi. Annars vegar pistil Kolbrúnar Bergþórsdóttur um fótbolta og hins vegar ummæli Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um opnunartíma Vínbúðanna.

„Er fólk ekki betur innrætt en þetta? Ég hvet fólk til þess að stíga niður og skoða málin. Er það svona sem við viljum að umræðuhefðin hér á landi sé? Hver sem þú ert eða hvað sem þú gerir, þá getur þú ekki látið þetta viðgangast. Börnin þín lesa þetta, fjölskylda, vinir, ættingjar og vinnufélagar. Það er komin tími á að fólk beri ábyrgð á því hvernig það skrifar um aðra og talar. Það sem fer á netið verður ekki aftur tekið. Nú er nóg komið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×