Fótbolti

Monaco vill fá Kompany

Hið moldríka franska félag, AS Monaco, er langt frá því að vera hætt að styrkja sig en félagið er nú á höttunum eftir fyrirliða Man. City, Vincent Kompany.

Kompany hefur verið einn besti varnarmaður ensku deildarinnar undanfarin ár og Monaco vill fá hann til að leiða vörn félagsins.

Liðið keypti Radamel Falcao og Joao Moutinho í fyrra og nú þarf að huga að varnarleiknum.

Kompany er 27 ára gamall og á sín bestu ár eftir í boltanum. Hann verður því ekki ódýr en Monaco á nóg af peningum.

Sömu sögu er reyndar að segja af eigendum Man. City og því ekkert víst að félagið freistist til þess að selja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×