Fótbolti

Jóhann Berg: Ég verð bara að bíða eftir að glugginn opni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson fagnar jöfnunarmarkinu með félögum sínum.
Jóhann Berg Guðmundsson fagnar jöfnunarmarkinu með félögum sínum. Mynd/Valli
Jóhann Berg Guðmundsson setti met á föstudagkvöldið með því að skora fyrstu þrennu íslensks landsliðsmanns í leik í undankeppni HM og það lá vel á kappanum þegar blaðamaður Vísis hitti hann í dag.

„Ég er löngu vaknaður eftir þennan draumaleik. Það er gaman að hafa skorað þrjú mörk og að hafa getað hjálpað liðinu að ná í mikilvægt stig á útivelli á móti Sviss. Við erum í bullandi sjens núna en þurfum virkilega að vinna leikinn á móti Albaníu á þriðjudaginn sem er jafnvel mikilvægari leikur en sá á móti Sviss," sagði Jóhann Berg Guðmundsson sem var jafnvinsæll hjá fjölmiðlamönnum á blaðamannafundi í gær og hann var eftir 4-4 jafnteflið í Sviss.

Menn höfðu á orði eftir þessi þrjú frábæru mörk hjá Jóhanni í Bern að einhver stórliðin í Evrópu hefðu örugglega bankað á dyrnar ef að félagsskiptaglugginn væri enn opinn.

„Mörkin voru mjög flott og það segir sig alveg sjálft að þetta var mjög flott þrenna. Það er alltaf hægt að segja ef og hefði en félagsskiptaglugginn er lokaður og ég verð bara að bíða," sagði Jóhann Berg afslappaður. Hann hefur fengið stórt hlutverk hjá AZ Alkmaar og það hefur skilað sér í meira sjálfstrausti inn á vellinum.

„Meiri spilatími gefur meira sjálfstraust og ég er líka búinn að vera að skora úti. Það gefur mér mikið sjálfstraust og það kannski sýndi sig á móti Sviss að ég kann þetta alveg," sagði Jóhann Berg en mun hana ekki skjóta við hvert tækifæri á móti Albaníu?

„Ég er ekki að fara láta vaða hvaðan sem er því ég þarf að finna réttu færin og skjóta þaðan og svo gefa hann síðan þegar aðrir eru í betri stöðu. Það verður að finna jafnvægið," sagði Jóhann Berg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×