Fótbolti

Sungu stuðningssöngva fram á rauða nótt

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Frá útikaffihúsinu í Zagreb í nótt.
Frá útikaffihúsinu í Zagreb í nótt. Mynd/Haraldur Björnsson
Hætt er við því að fjölmargir stuðningsmenn íslenska landsliðsins hafi misst af morgunmatnum á hóteli sínu í króatísku höfuðborginni í dag.

Nokkrir tugir Íslendinga skelltu sér í miðbæ Zagreb í gærkvöldi þar sem línur voru lagðar fyrir leikinn gegn Króötum í kvöld. Raddböndin voru hituð upp með því að syngja stuðningssöngva sem munu vafalítið heyrast frá fyrstu mínútu í leiknum gegn Króötum í kvöld.

Um tíu lögregluþjónar stóðu vaktina við útikaffihúsið þar sem Íslendingarnir skoluðu niður öli. Báru þeir bæði lögreglumönnum og þjónum vel söguna og sögðu gestrisni þeirra til fyrirmyndar.

Von er á fleiri Íslendingum til Zagreb í dag eftir hádegi en reiknað er með að um 800 íslenskir stuðningsmenn verði á Maksimir-leikvanginum í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19.15 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×