Innlent

"Ég er mjög rómantísk“

Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar
Vigdís Hauksdóttir kennir á blómaskreytinganámskeiði á fimmtudaginn.
Vigdís Hauksdóttir kennir á blómaskreytinganámskeiði á fimmtudaginn.
Flesta daga situr hún í þingsalnum og tekst á um mál sem varða þjóðina. Í kvöld ætlar Vigdís Hauksdóttir, aftur á móti, að ræða um rósir, rómantík og rauðan lit jólanna.

Þingmaðurinn skeleggi Vigdís Hauksdóttir er landsmönnum að góðu kunn en hún er ekki feimin við að viðra skoðanir sínar um mál sem henni finnst skipta máli. Áður en Vigdís sneri sér alfarið að pólitík starfaði hún sem blómaskreytir og var Íslandsmeistari í þeirri iðju fyrir 11 árum síðan.

Blómaval heldur á morgun og á fimmtudag jólaskreytinganámskeið þar sem á meðal kennara verða gamlar kempur sem áður störfuðu í versluninni. Þær ætla að sýna það sem þykir flott í skreytingum fyrir þessi jól og er ein þessara kempna áðurtéð Vigdís. Hún hefur ekki í huga að hætta í pólitík og snúa sér að blómaskreytingum á næstunni en hlakkar mikið til að kenna á námskeiðinu á fimmtudaginn. „Og taka þátt hér í jólastemmningunni. Það verður bara skemmtilegur salur og mikið um spurningar og vonandi hef ég eitthvað nýtt fram að færa“, segir hún.

Vigdís segist ætla að halda sig við blóm á námskeiðinu á fimmtudaginn og geyma allar umræður um hagræðingar. Þegar talað er um blóm er rómantík oft ekki langt undan og því er ekki úr vegi að spyrja þingmanninn hvort hún sé rómantísk. „Ég er mjög rómantísk“, segir hún og skemmtilegast fannst henni að afgreiða unga herramenn sem voru að fara á sitt fyrsta stefnumót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×